Málþing
Þann 28. mars frá klukkan 09:00-15:00 stendur Félag fósturforeldra fyrir málþingi um málefni fósturforeldra á 2. hæð Hilton Reykjavík Nordica hótelinu á Suðurlandsbraut 2.
Fyrri hluta dags mun málþingið snúast um stöðu fósturfjölskyldna eins og hún birtist okkur í dag og skapa sjaldgæft tækifæri fyrir fósturforeldra og fagaðila til að fræðast um og ræða upplifanir af hversdagslegum áskorunum. Síðari hluta dags munum við svo horfa til framtíðar, hvers konar framþróunar má vænta innan kerfisins og hvaða lausnir sé þegar að finna víðsvegar í kerfinu og hvernig megi betur tryggja að góð reynsla dreifist um landið. Í lok dags fáum við svo aðila í panel þar sem tækifæri verður til að ræða vel það sem komið hefur fram yfir daginn.
Við höfum undirbúið frábæra dagskrá og verða erindi frá fagfólki, fræðafólki, félagstjórn, fyrrum formanni og auðvitað fósturforeldrum.
Skráning er opin til 26. Mars og er þátttökugjald 4.500 kr fyrir félagsfólk, 14.500 kr fyrir aðra. Innifalið í verði er morgunmatur, hádegismatur og kruðerí yfir daginn.