top of page

Fundur með félags- og tryggingamálanefnd Alþingis

  • Writer: Admin
    Admin
  • Mar 1, 2011
  • 1 min read

Guðbergur formaður Félags fósturforeldra og Eva Dögg þáverandi formaður Landsamtaka vistforeldra í sveitum mættu á fund hjá þingnefnd alþingis, vegna breytinga á barnaverndarlögunum, þann 3.febrúar síðastliðinn. Þar óskuðu þau eftir að gerðar yrðu ýmsar breytingar á orðalagi frumvarpsins. Farið var fram á að bæta inn og tilgreina hagsmunasamtök fósturforeldra þegar verið væri að semja um greiðslur og annan kostnað. En í frumvarðinu var einungis minnst á Samband íslenskra sveitarfélaga og Barnaverndarstofu. Gerðar voru athugasemdir við að ekki væri minnst á tryggingamál fósturbarna.

Formenn félaganna lögðu mikla áherslu á að tala um framfærslukostnað og svo aftur fósturlaun í stað þess að fósturforeldrar fengju eina upphæð greidda eftir meðlögum. Þingmenn nefndarinnar tóku vel í athugasemdir formannanna.

 
 
 

Comentários


Nýlegar fréttir
bottom of page