top of page

Fjöláfalla- og tengslavandi fósturbarna 10-16 ára

fim., 08. maí

|

Reykjavík

Við bjóðum félagsfólki að taka þátt í frábæru námskeiði Jóhönnu Jóhannesdóttur félagsráðgjafa á niðurgreiddu verði.

Fjöláfalla- og tengslavandi fósturbarna 10-16 ára
Fjöláfalla- og tengslavandi fósturbarna 10-16 ára

Staður & stund

08. maí 2025, 17:00 – 21:00

Reykjavík, Sigtún 42, 105 Reykjavík, Iceland

Um viðburðinn

Félag fósturforeldra fær Jóhönnu Jóhannesdóttur félagsráðgjafa og fjölskyldufræðing til að bjóða upp á sérstaka fræðslu um vanda tengdum fjöláföllum og tengslum barna 10-16 ára. Skilyrði fyrir þátttöku á námskeiðið er að fólk sé á félagaskrá og í skilum á félagsgjöldum en félagið býður niðurgreitt þátttökugjald með styrk frá ÖBÍ.Námskeiðið verður haldið í Sigtúni 42 fimmtudaginn 10. apríl frá klukkan 17:00-21:00 og rúmar 20 manna hóp. Að námskeiði loknu mun hópnum bjóðast þátttaka í smærri handleiðsluhópum sem Jóhanna mun leiða. Í hópunum fá fósturforeldrar tækifæri til, í gegnum stýrðar umræður að kafa dýpra í efnið sem kynnt verður á námskeiðinu; út frá eigin reynslu, tilfinningum og aðstæðum. Tímasetningar vegna handleiðsluhópa verðar kynntar síðar, hverjum hópi fyrir sig. Þátttaka í handleiðsluhópum er innifalið í verði námskeiðsins.


Í þeim tilfellum sem makar eru fósturforeldrar er mælt með að bæði sæki fræðsluna þó þeim fósturforeldrum sé velkomið að sækja fræðslu án maka síns.


Fjöláfalla-…


Deila viðburðinum

bottom of page