Kaffispjall um meistararannsókn á upplifun fósturforeldra af stuðningi og hindrunum í barnaverndarþjónus - nóvember 2026
þri., 03. nóv.
|Reykjavík
Kaffispjallið fer fram fyrsta þriðjudagskvöld hvers mánaðar, að þessu sinni kemur félagsráðgjafinn Íris Dögg Ingvadóttir og kynnir fyrir okkur áhugaverða meistararannsókn sína.


Staður & stund
03. nóv. 2026, 20:00 – 22:30
Reykjavík, Sigtún 42, 105 Reykjavík, Iceland
Um viðburðinn
Kaffispjall Félags fósturforeldra fer fram fyrsta þriðjudag hvers mánaðar í Mannréttindahúsinu. Viðburðirnir eru vettvangur fyrir fósturforeldra til að hittast, ræða saman, sækja og/eða deila reynslu og er frábær vettvangur fyrir öll til að sækja stuðning frá hinu stærra samfélagi fósturforeldra.
Að þessu sinni hefjum við kvöldið á kynningu frá félagsráðgjafanum Írisi Dögg Ingvadóttur en hún lauk meistaranámi sínu með að rannsaka upplifanir fósturforeldra af hindrunum og stuðningi í barnaverndarþjónstur. Verkefnið var vísir að stærri rannsókn sem Háskóli Íslands vinnur að um þessar mundir. Að kynningu lokinni verður gefi færi á spurningum og umræðum um efni hennar en að því loknu verður setið áfram og rætt um allt milli himins og jarðar.
Við hvetjum þau sem áhugasöm eru um að mæta á kaffipsjallið að melda sig á facebook viðburðinn.