Samverustund og hóphandleiðsla fyrir fósturforeldra
mán., 23. feb.
|Mannréttindahúsið
Félag fósturforeldra boðar til samverustundar fósturforeldra vegna nýlegrar umfjöllunar um fósturmál


Staður & stund
23. feb. 2026, 20:00 – 22:30
Mannréttindahúsið, Sigtún 42, 105 Reykjavík, Iceland
Um viðburðinn
Undanfarið hafa margar sögur komið fram um hræðilegt ofbeldi sem börn urðu fyrir í vistun á Bakkakoti. Sú umfjöllun og umræða um fósturmál í framhaldinu hefur hreyft við mörgum og þá sérstaklega okkur fósturforeldrum.
Samfélagsumræða um þessi efni geta vakið upp erfiðar og flóknar tilfinningar eða jafnvel spurningar. Sum okkar eru einnig að annast börn sem hafa sjálf upplifað ofbeldi eða vanrækslu og því getur umræðan verið “triggerandi”, bæði fyrir okkur og börnin. Því er mikilvægt að við sem samfélag fósturforeldra stöndum saman og séum til staðar fyrir hvort annað.
Í ljósi þess býður Félag fósturforeldra félagsfólki sínu til samveru, samtals og hóphandleiðslu í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, mánudaginn 23. febrúar klukkan 20:00. Við viljum endilega fá sem flest til að mæta í persónu en einnig verður fjarfundur fyrir þau sem kjósa að taka þátt heiman frá sér. Fjarfundarhlekkur verður sendur félagsfólki í tölvupósti og gerður aðgengilegur á lokuðum hóp félagsins. Boði…