Stuðningshópur fósturforeldra á Selfossi - febrúar 2026
þri., 10. feb.
|Selfoss
Félag fósturforeldra hefur komið á fót staðbundnum stuðningshóp fyrir fósturforeldra á Selfossi sem hittist nú í annað sinn.


Staður & stund
10. feb. 2026, 20:00 – 23:00
Selfoss, Eyravegur 23, 800 Selfoss, Iceland
Um viðburðinn
Félag fósturforeldra kemur á fót öðrum stuðningshóp fyrir fósturforeldra, að þessu sinni á Selfossi, í þeim tilgangi að færa félagsstarfið nær og ná betur til fósturforeldra á Suðurlandi.
Góður hópur fósturforeldra hefur þegar komið saman þegar stuðningshópurinn hittist á Selfossi í nóvember 2025 og vildi hópurinn gjarnan að slíkir hittingar myndu festa sig í sessi.
Stuðningshópurinn er liður í verkefni félagsins að koma á fót staðbundnum jafningjastuðning fyrir fósturforeldra á fleiri stöðum á landinu en mennta- og barnamálaráðuneytið hefur veitt styrk til verkefnisins auk þess sem ÖBÍ hefur verið dyggur styrktaraðili verkefnisins. Fósturforeldrar á Suðurlandi jafnt innan sem utan félagsins er velkomið að mæta. Viðburðurinn er haldinn í húsakynnum Rauða Krossins í Árnessýslu. Við hvetjum þau sem eru áhugasöm að taka þátt að melda sig á facebook viðburði sem finna má með að smella hér.