100 manna helgi í Vatnaskógi

Tvisvar á ári stendur Félag fósturforeldra fyrir fósturfjölskylduhelgum í Vatnaskógi. Helgarnar eru haldnar í þeim tilgangi að styrkja tengsl milli fósturbarna og fósturfjölskyldna, njóta nærandi samveru og skemmta ungum sem öldnum.
Í ár tóku 20 fósturfjölskyldur eða rúmlega 100 manns þátt.
Helgin var vitaskuld stútfull af dagskrá, alveg frá því að mætt var á staðinn á föstudegi og fram að brottför á sunnudegi.

Eftir að fósturfjölskyldurnar voru mættar á svæðið, höfðu komið sér fyrir og lokið við að snæða fyrstu máltíðina af fjölmörgum var haldið út í myrkrið í vasaljósagöngu og varðeld þar sem í boði var að grilla sykurpúða. Að því loknu var haldið inn í hlýjuna á kvöldvöku sem starfsfólk Vatnaskógar stýrði.
Á laugardagsmorgni kom Blaðrarinn í heimsókn og kenndi fólki að gera bæði blöðrudýr og ýmsar sirkúskúnstir. Nóg var svo af hoppuköstulum og var ákveðið að henda í kandífloss til að gulltryggja að stuðið yrði allsráðandi.

Starfsfólk Vatnaskógs hélt svo úti valdagskrá fyrir öll börn og ungmenni svo að fósturforeldrarnir fengju eitt dagskrárbil í næði til að ræða saman um áskoranir og bjargráð í hlutverki fósturforeldra og sækja styrk til hvors annars. Á meðan gátu börnin farið í leikinn varúlf, föndrað eða farið í ærslaleiki í íþróttasal.
Undir lok dags komu síðan Spilavinir með heilan helling af spennandi og skemmtilegum spilum og kepptu ungir og fullorðnir um sigur í allskyns spilum sem reyndu á snerpu, hugvit og athygli.

Um kvöldið skartaði salurinn í Birkiskála sínu skelfilegasta en þar tók svo við grímuball. Á sunnudegi var helginni lokið með þeim hætti að sigla út á vatn í árabátum en að því loknu bauð Vatnaskógur í heljarinnar pizzaveislu. Það héldu því öll sátt og södd heim á leið. Fósturfjölskylduhelgar í Vatnaskógi er dýrmætur liður í starfi félagsins, í ár var okkur gert kleift að halda helgarnar með styrk frá SOS barnaþorpum, með hluta þess styrk sem félagið fékk í þágu farsældar barna frá mennta- og barnamálaráðuneyti og með styrkfé frá einstaklingum. Það fé nýtti félagið til að greiða þátttökugjöld fósturbarna og fyrir aðkeypta dagskrá fyrir fósturfjölskyldur.






Comments