top of page

BOFS kemur á fót handleiðsluteymi

10 minutes ago
3 min read

Nýtt handleiðsluteymi hefur tekið til starfa innan fósturteymis BOFS í samræmi við framkvæmdaáæltun á sviði barnaverndar 2023-2027. Þjónustan er sögð fyrst og fremst ætluð börnum í styrktu fóstri sem þurfa sérstaka umönnun og þjálfun á fósturheimili í afmarkaðan tíma. Markmið handleiðsluteymisins sé að styðja við börn, fósturforeldra og aðra sem koma að umönnun barnsins, stuðla að auknum stöðugleika í lífi barnanna og draga úr líkum á ótímabærum fósturlokum. Í handleiðsluteyminu starfa félagsráðgjafarnir Berglind Ósk B. Filippíudóttir og Helga Katrín Hjartardóttir ásamt Særúnu Ósk Böðvarsdóttur, þroskaþjálfa og fötlunarfræðingi. Guðbjörg Gréta Steinsdóttir, teymisstjóri fósturteymis, leiðir starf teymisins. Um þetta sendi BOFS öllum fósturforeldrum á póstlista stofnunarinnar bréf en efni þess kemur hér á eftir. Kæru fósturforeldrar

Barna- og fjölskyldustofa hefur komið á fót handleiðsluteymi sem vinnur með börnum í fóstri þar sem

þörf er á sérstakri umönnun, þjálfun og auknum faglegum stuðningi.

Markmið þjónustunnar er að stuðla að auknum stöðugleika í lífi barna í fóstri, styrkja fósturforeldra,

foreldra og/eða aðra umönnunaraðila í mikilvægu hlutverki sínu og efla samstarf þeirra aðila sem koma

að málefnum barna í fóstri, allt eftir þörfum og markmiðum hvers máls fyrir sig.

Með stuðningi handleiðsluteymis fá fósturforeldrar reglulega ráðgjöf og handleiðslu sem miðar að því

að efla öryggi þeirra í hlutverkinu, auka færni við að mæta þörfum barnsins og styðja við stöðugleika

fóstursins. Markmiðið er að fósturforeldrar standi ekki einir frammi fyrir þeim áskorunum sem geta fylgt

því að annast barn með auknar stuðningsþarfir heldur hafi aðgang að sérhæfðri þekkingu, ráðgjöf og

faglegu samstarfi á meðan fóstrinu stendur.


Hvernig fer vinnan fram og hvert er hlutverk fósturforeldra?

Í upphafi er farið yfir þarfir og styrkleika barnsins, reynslu og stuðningsþörf fósturforeldra og þau

markmið sem unnið verður að. Á meðan fóstrinu stendur eiga fósturforeldrar reglulega fundi með

sérfræðingi handleiðsluteymis þar sem farið er yfir stöðu barnsins, framvindu málsins og þær áskoranir

sem kunna að koma upp. Áhersla er lögð á að finna leiðir sem styðja við þroska og líðan barnsins og

aðlaga stuðning að breyttum þörfum eftir því sem við á. Framvinda er metin reglulega og markmið og

næstu skref endurskoðuð eftir þörfum.

Fósturforeldrar gegna lykilhlutverki í þessari vinnu. Þeir miðla upplýsingum um líðan barnsins og daglegt

líf þess, taka þátt í ákvörðunum um markmið og vinnulag, auk þess að leggja sitt af mörkum til að

innleiða þær aðferðir sem ákveðið er að beita.


Hver ber ábyrgð á hverju?

Sérfræðingur handleiðsluteymis leiðir þá faglegu vinnu sem teymið hefur tekið að sér.

Barnaverndarþjónustan fer áfram með mál barnsins og ber ábyrgð á áætlunum, ráðstöfun, þjónustu,

stuðningi og eftirfylgd með fóstrinu. Hver þjónustuaðili ber áfram ábyrgð á sínum verkefnum.

Hvað felst í hlutverkinu?

Börn sem njóta sérstakrar umönnunar og þjálfunar þurfa oft meiri stuðning, umönnun og eftirfylgd en

almennt gerist. Því er mikilvægt að fósturforeldrar hafi reynslu af umönnun barna í fóstri eða

sambærilega reynslu, geti unnið í samstarfi við fagfólk og séu tilbúnir að taka virkan þátt í handleiðslu

og fræðslu.

Jafnframt þarf fósturheimilið að geta boðið upp á stöðugt, öruggt og þroskavænlegt umhverfi þar sem

svigrúm er til að mæta auknum þörfum barns. Við mat á hæfni fósturforeldra til að sinna hlutverkinu er

meðal annars litið til reynslu, aðstæðna, stuðningsnets, samstarfshæfni og vilja til að tileinka sér nýja

þekkingu og aðferðir.

Upplýsingar og fyrirspurnir

Nánari upplýsingar um þjónustuna veitir handleiðsluteymi Barna- og fjölskyldustofu. Frekari upplýsingar

um sérstaka umönnun og þjálfun og viðmið fyrir fósturforeldra má einnig finna á heimasíðu stofunnar.

Við hlökkum til samstarfs við fósturforeldra um land allt og vonum að handleiðsluteymið verði gagnleg

viðbót við það mikilvæga starf sem unnið er á hverjum degi í þágu barna í fóstri.

Hægt er að hafa samband við handleiðsluteymið á fostur@bofs.is.

Með bestu kveðju,

Handleiðsluteymi Barna- og fjölskyldustofu

 
 
 

Comments


Nýlegar fréttir
bottom of page