top of page

Norðurorka styrkir námskeiðshald á Akureyri

  • 14 hours ago
  • 1 min read
Elsa Dögg Benjamínsdóttir er í stjórn félagsins og hefur leitt stuðningshóp fósturforeldra á Akureyri
Elsa Dögg Benjamínsdóttir er í stjórn félagsins og hefur leitt stuðningshóp fósturforeldra á Akureyri

Norðurorka veitti Félagi fósturforeldra 350.000 króna styrk til að færa fósturforeldrum á Norðurlandi aukin stuðning nær þeirra heimabyggð í formi námskeiða.


Árið 2025 bauð Félag fósturforeldra félagsfólki að taka þátt í tveimur nýjum námskeiðum í Reykjavík. En með því vildi félagið bregðast við þeim skort á frekari þjálfun og fræðslu sem í er í boði fyrir fósturforeldra eftir að þau taka við hlutverkinu og jafnframt sniðin að þeirra þörfum. Félagið hefur síðan leitað styrkja til að geta fært fósturforeldrum námskeiðin í öðrum landshlutum því það er ekki alltaf sjálfsagt fyrir þau að ferðast til Reykjavíkur. Styrknum er ætlað að fjármagna námskeiðshald á Akureyri en þar hefur félagið starfrækt stuðningshóp fyrir fósturforeldra í rúmt ár. Elsa Dögg, stjórnarkona í félaginu, tók við styrknum frá Norðurorku og hefur leitt starf stuðningshópsins á Akureyri þar sem stór og góður hópur fósturforeldra hefur hisst með reglulegum hætti undir formerkjum þess.


Það er dýrmætt fyrir fósturforeldra og fjölskyldur þeirra að geta tengst og stutt hvort annað með ráðum og dáðum. Sömuleiðis að geta eflt færni sína til að takast á við þær hversdagslegu áskoranir sem þau kunna að fást við í hlutverkinu. Því er félaginu mikið ánægjuefni að hljóta þennan styrk frá Norðurorku sem mun nýtast til að stuðla að báðum þáttum samtímis í þágu fósturforeldra á Norðurlandi og fjölskyldna þeirra.

 
 
 
Nýlegar fréttir
bottom of page