top of page

Fóru heim með súkkulaðiegg og skemmtileg tæki

  • Writer: Admin
    Admin
  • Apr 16
  • 1 min read
Flest af sigurvegum páskabingósins, öll ánægð með sinn afla
Flest af sigurvegum páskabingósins, öll ánægð með sinn afla

Félagið hélt páskabingó, laugardaginn 12. apríl, í Mannréttindahúsinu. Spilaðar voru 10 umferðir en í hverri þeirra mátti vinna stærðarinnar páskaegg í boði félagsins og ýmis skemmtileg tól og tæki sem félaginu var gefið að gjöf frá USB heildsölu að þessu tilefni. Ásamt nestisboxum og skurðarbrettum voru einnig stafrænar myndavélar, sumar sem gátu prentað út myndir, bluetooth míkrafónar með hátalara, lítil karaokee vél með tveimur míkrafónum og ljóskastari fyrir myndatökur. Vill félagið færa sérstakar þakkir til fyrirtækisins og forsvarsfólk þess fyrir þessa höfðingjalegu gjöf sem komið var áfram í góðar hendur.


Það var margmennt og því þétt setið
Það var margmennt og því þétt setið

Hlé var gert á bingóspili til þess að hleypa þeim ungu út í sólina að leita páskaeggja sem Fríður stjórnarkona og fjölskylda hennar höfðu málað og falið víðsvegar um fallegan garð Mannréttindahússins. Börnin gátu síðan skipt skreyttu eggjunum út fyrir súkkulaðiegg og fengu öll börn eitt egg.


Tæplega 70 manns mættu í bingóið og sá Helga Jónsdóttir um bingóstjórn fyrir félagið líkt og hún gerði af sömu snilld í jólabingói félagsins. Helga hefur sinnt því tvisvar sem sjálfboðaliði fyrir félagið ásamt því að útvega bingóspjöld og því var henni fært páskaegg að þakkarvotti.





 
 
 

留言


Nýlegar fréttir
bottom of page