Frábær fræðsla fyrir fjölda fósturforeldra á Norðulandi

Það var kátt á hjalla í safnaðarheimili Glerárkirkju fimmtudaginn 29. nóvember þegar 27 fósturforeldrar komu saman á Norðurlandi til að njóta fræðslu og frábærrar samveru. Félag fósturforeldra hefur um nokkurt skeið haldið úti stuðningshóp á Akureyri fyrir fósturforeldra sem hittist mánaðarlega í þeim tilgangi að ná betri tengslum og styðja betur við félagsfólk okkar sem búsett er á svæðinu. Að sömu fyrirmynd er félagið að byggja upp stuðningshópa víðar um landið þar sem þéttbýlt er af fósturforeldrum. Félagið hlaut samfélagsstyrk Norðurorku til að byggja ofan á árangur með hópinn og efla stuðning enn frekar en fyrri styrkveitingar frá ÖBÍ og mennta- og barnamálaráðuneyti hafa gert félaginu kleift að byggja hópinn og aðra stuðningshópa upp. Verkefnið hefur gengið vonum framar og var þátttaka þetta kvöldið tvöföld á við það sem félagið hafði væntingar um. Forysta félagsins nýtti því tækifærið og skellti sér norður að taka þátt með hópnum og kynnast fósturforeldrum innan hans betur.

Kvöldið byrjaði á fræðslu og námskeiði um að vera aðstandandi einstaklinga með geðrænan vanda með dr. Gísla Kort Kristóferssyni sérfræðing í geðhjúkrum. Markmiðið var að styrkja fósturforeldra að eiga farsælli samskipti og geta betur leyst úr krefjandi samskiptum, vegna geðraskana, við fósturbörn og aðra sem tengjast barninu. Gísl leiddi hópinn í gegnum fræðslu um viðfangsefnið þar sem staldrað var við og þáttakendur voru látnir ígrunda vissar spurningar um reynslu, viðhorf og bjargráð sem var svo nýtt til að spegla við aðra í hópsamtölum. Í lokin skipti Gísli þátttakendum upp í hópa þar sem fólk átti í stuðningsríkum samtal undir handleiðslu hans.
Það er dýrmætt fyrir félagið að geta veitt fósturforeldrum vettvang til fræðslu og jafningjastuðnings. Rannsóknir sýnar að slíkur stuðningur skiptir sköpum í að efla sjálfsöryggi fólks í hlutverkinu, eykur líkur á því að fólk haldist lengur í starfi fósturforeldra og stuðlar að farsælla fóstri barna. En líkt og var áþreifanlegt þetta kvöld er líka bara mikilvægt fyrir líðan fólks að fá að opna sig um áskoranir og leita í stuðning anarra.

Þegar erindi Gísla var lokið snæddu þátttakendur kvöldverð saman. En svo ávarpaði Guðlaugur, formaður stjórnar, viðstadda og stýrði samtali. Þar var rætt mikilvægi þessa stuðningshópastarfs og hvernig mætti enn bæta í félagsstarfið á norðurlandi, mikilvægi þess að félagsfólk leitaði til félagsins um erfið mál, um málsvarastarf félagsins og hvaða umbótamálum félagið væri að veita athygli þessa dagana.
Í lokaorðum sínum til hópsins þakkaði Guðlaugur fólki fyrir að koma, það væri alltaf nærandi að hitta og njóta samveru við fósturforeldra því þau væru úrræðagóð, jákvæð og byggu yfir slíkri seiglu. Hvatti hann þau til að halda áfram sínu góða starfi og vera dugleg að nýta þennan vettvang félagsins til að næra andann, spegla við aðra, leita ráða og njóta stuðnings þegar á þyrfti að halda.






Comments